Skilmálar vefverslunar

Fyrirtækið á bakvið hfit.is er Hfit ehf. (5908240380), Borgarflöt 7, 550 Sauðárkrókur

Hfit ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

EFTIRFARANDI SKILMÁLAR GILDA UM HEIMSÓKN ÞÍNA Á VEFSÍÐUNA OG ÖLL VIÐSKIPTI SEM ÞÚ KANNT AÐ GERA UM VEFSÍÐUNA, NÚ EÐA SÍÐAR.

Réttur til að hætta við pantanir

Hfit.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. 

Hfit ehf áskilur sér rétt til að segja upp áskrift án endurgreiðslu ef samband milli kúnna og þjálfara er ekki að ganga.

Efni á heimasíðu og námskeiðum / Höfundaréttur

Allt efni á heimasíðu hfit.is og allt efni á námskeiðum sem seljandi bíður upp á er í eigu seljanda. Kaupanda er óheimilt að afrita efnið eða að deila því áfram.

Einstaklingsaðgangur

Óheimilt er að deila vörum eða áskrift með öðrum sem hefur ekki greitt fyrir aðgang að tiltekinni vöru eða þjónustu. Þú kaupir aðgang fyrir þig eina/einan.

Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) í mánaðarlegri áskrift

Kaupandi sem skráir sig í mánaðarlega áskrift hjá hfit.is skuldbindur sig til að greiða mánaðarlega (á 30 daga fresti) fyrir námskeið.

Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) þegar keypt er stakt námskeið

Kaupandi sem kaupir stakt námskeið (eða aðra vöru) greiðir fyrirfram. Ef um netnámskeið er að ræða er ekki hægt að fara fram á endurgreiðslu eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi.

Endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu eftir að búið er að greiða áskriftargjald eða stakt námskeiðsgjald, enda er alltaf greitt fyrirfram fyrir verðmæti sem kaupandi fær. Endurgreiðsluréttur stofnast ekki ef þáttakandi hefur ekki nýtt sér vöruna eða þjónustuna sem keypt var.

Uppsögn á áskrift

Kaupandi getur ekki sagt upp áskrift að vöru eða þjónustu hfit.is nema vegna óviðráðanlegra aðstæðna og þarf þá að hafa samband.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð geta breyst án fyrirvara. Ef áskriftargjald (mánaðarlegar áskriftir) hækkar mun hfit.is senda tilkynningu þar um og taka verðbreytingar þá gildi frá og með næstu mánaðarmótum. 

Eigin ábyrgð

Athugaðu að kaupandi ber ábyrgð á framkvæmd og niðurstöðu af vörum eða þjónustu frá hfit.is. Kaupandi ber ábyrgð á eigin heilsu og verður að treysta sér til að framkvæma æfingar eða til að nýta aðra þjónustu sem hann fær hjá hfit.is. Við hvetjum kaupanda til að hlusta á eigin líkama og verður ávallt að huga að eigin getu þegar tekin er ákvörðun um að kaupa og nýta sér þjónustu hjá hfit.is. Ef um meiðsli eða önnur veikindi er að ræða hvetjum við iðkanda til að ráðfæra sig við sérfræðing áður en keypt er þjónustu hjá hfit.is.

Með kaupum á vöru eða þjónustu hjá hfit.is staðfestir kaupandi að hann beri þessa ábyrgð (eigin áhættu). 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Breytingar 

Hfit.is áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum. Breytingarnar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á heimasíðunni.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi ágreiningur vegna hans skal það mál rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Hfit ehf. (5908240380)
Borgarflöt 7
550 Sauðárkrókur

hfit@hfit.is